|
Leitarvél |

|
|
| |
|
| |
Karfan þín |

|
|
|
|
25.10.2007 23:40
Mjólkuraukning með hjálp jurtaúrræða
Jurtaúrræði til mjólkuraukningar eru tiltölulega ný hér á landi. Það verður þó að takast fram að engar vísindalegar sannanir eru til fyrir því að jurtir auki mjólkurframleiðsluna heldur er þetta allt byggt á hefðum og reynslu mjólkandi mæðra. Og eins og með margt annað þá er engin vissa fyrir árangri, sérstaklega með notkuna jurtanna einna og oft mikilvægast að líta á fleiri hluti í einu s.s. ásetningu og aðra tæki við gjöfina og svo snuðnotkun. Jurtaúrræði til mjólkuraukningar eru tiltölulega ný hér á landi. Þónokkuð lengi hefur fengist mjólkuraukandi te, blanda af jurtum sem reynast ágætlega. En reyndin er sú að en meiri árangur hefur náðst með notkun jurtanna beint heldur en í tei. Það verður þó að takast fram að engar vísindalegar sannanir eru til fyrir því að jurtir auki mjólkurframleiðsluna heldur er þetta allt byggt á hefðum og reynslu mjólkandi mæðra. Og eins og með margt annað þá er engin vissa fyrir árangri, sérstaklega með notkuna jurtanna einna og oft mikilvægast að líta á fleiri hluti í einu s.s. ásetningu og aðra tæki við gjöfina og svo snuðnotkun.
Hér hefur okkur reynst ágætlega að nota tvær jurtir saman, Alfalfa og Fenugreek. Engar sérstakar frábendingar eru í sambandi við Alfalfa en ég bendi á kellymom.com til frekari upplýsinga kellymom.
Fenugreek er jurt sem lengi hefur verið notuð af náttúrulæknum sem lyf og til mjólkuraukningar (galactogogue).
Mæður sem óska eftir að auka mjólkurframleiðsluna geta valið að nota Fenugreek og Alfalfa sér til hjálpar.
Fenugreek er jurtin trigonella foenum-graecum L, eða Grikkjasmári á íslensku og er ræktuð víða um heim þ.m.t. í Argentínu, Frakklandi, Indlandi og Norður-Afríku og í Miðjarðarhafslöndum. Þroskað fræ jurtarinnar er þurrkað og notað og er virka efnið eitt: diosgenin. Fenugreek er selt í hylkjum (malað fræ jurtarinnar og er trefjaríkt) til að auka mjólkurframleiðsluna. Te af fræunum er veikara en hylkin. Skammturinn er 2-3 hylki af Fenugreek, tekið inn þrisvar á dag. Samhliða má taka 2 hylki þrisvar á dag af Alfalfa. Smærri skammtar gagna e.t.v. ekki til að auka framleiðsluna. Árangur sést oft á 1-3 dögum, þótt sumar mæður finni engan mun. Engar klínískar rannsóknir hafa verið birtar um áhrif efnisins, þótt margir brjóstagjafaráðgjafar mæli með notkun þess með góðum árangri. Fenugreek er notað við gerð gervi hlyn síróps. Ef efnið er notað til að auka mjólkurframleiðslu ætti að hætta inntöku þess þegar árangur hefur náðst, svo fremi sem móðirin getur lagt reglulega á brjóst eða farið í mjaltavél. Við notkun á Fenugreek getur komið lykt af hlynsírópi af svita móður eða barns. Það getur lækkað blóðsykur og hugsanlega valdið ofnæmi hjá viðkvæmum einstaklingum sem hafa verið með astma. Mæður með sykursýki, astma og ofnæmi ættu því að leita álits læknis áður en Fenugreek er tekið. Inntaka jurtarinnar getur valdið niðurgangi. Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið telur Fenugreek hættulaust en konur ættu alls ekki að nota það á meðgöngu. Ábendingar: Notið aðeins merktar vörur þar sem kemur fram styrkur efnisins og dagsetning á umbúðunum Leitið til læknis eða brjóstagjafaráðgjafa ef mjólkurframleiðsla er of lítil. Notkun jurtaúrræða er ekki alltaf lausnin á vandamálum við mjólkurframleiðslu. Leitaðu álits læknis ef þú ætlar að nota jurtaúrræði, sérstaklega ef þú átt við önnur heilsuvandamál að stríða. Leitaðu til læknis ef þú verður vör við hliðaráhrif af jurtaúrræðum. Skoðaðu vel utan á glasið og fullvissaðu þig um að engum öðrum efnum hafi verið bætt saman við efnið sem þú ætlar að taka. Vertu á verði gegn merkjum um niðurgang, versnandi astma eða aukna sykursýki (sykursýkissjúklingar) Farðu ekki fram yfir ráðlagðan dagskammt þar sem aukaverkanir geta komið. Heimildir: 1.Review of Natural Products. Facts and Comparisons, St. Louis, Mo. 1996 2. Sauvaire Y. Baccou JC. Extraction of diosgenin, (25R)-spirost-5-ene-3beta-ol problems of the hydrolysis of the saponins. Lloydia 41:247, 1978 3. Valette G, et al. Hypocholesterolaemic effect of fenugreek seeds in dogs. Atherosclerosis 50(1):105, 1984. 4. Ribes G. et.al.Effects of fenugreek seeds on endocrine pancreatic secretions in dogs. Ann Nutr Metab 28(1):37, 1984 5. Dugue P, Bel J, Figueredo M. Fenugreek causing a new type of occupational asthma. Presse Medicale 22(19):922, 1993." 6. Huggins, K. Fenugreek: One Remedy for Low Milk Production 7. Lawrence, RA, Lawrence RM, Breastfeeding: A Guide for the Medical Profession, 2000.376. 8. Hale, T. Medications and Mothers’ Milk. 2000. 260-261
Þýtt af heimasíðu Medela: www.medela.com
Til baka
|
|
|