Forsíđa Vörur & Verslun Fréttir / Tilkynningar Fyrirtćkiđ Brjóstagjöf Vörumerkin Álfabikarinn Mjaltavélaleigan Mjólkun Hafđu samband
     

    Leitarvél

     

    Nýjar vörur

    Tigex naghringur +3M
    Tigex naghringur silikon
    Tigex kćlihringur
    Tigex diskur međ sogskál
    Tigex skćri

     

    Karfan ţín

    26.10.2007 21:28
    Hey mamma get ég fengiđ brjóst núna?

     

    Sumar konur hafa börn sín á brjósti eftir ađ ţau stálpast
    Kostir brjóstagjafar eru alls stađar viđurkenndir og hlutfall ţeirra mćđra sem hefja brjóstagjöf hefur hćkkađ í um 70%. En ţótt sérfrćđingar segi ađ margir ţessir kostir séu enn til stađar eftir ársaldur ţá er fjöldi ţeirra mćđra sem hafa börn sín á brjósti fram yfir 12 mánađa aldur minni en 20%.
    Jolene Ivey,  fimm barna móđir í Cheverly mother segir: “Ţví eldra sem barniđ er, ţví erfiđara verđur ađ gefa ţví brjóst á almannafćri.”

    Marianne Vakiener, heimavinnandi móđir í Fairfax, var međ son sinn á brjósti til 3 ára aldurs og dóttur sína til 5 ára en ekki án andstöđu.

    "Ţegar ég var međ son minn á brjóst, spurđi eiginmađur minn stundum: “Hvenćr hćttir ţú ţessu?” vegna ţess ađ stundum ţegar hann sýndi áhuga á kynlífi var ég ţreytt og hafđi ekki áhuga."
    Eldri kynslóđir veita e.t.v. ekki heldur mikinn stuđning. Deborah Tobin, hjúkrunarfrćđingur og brjóstagjafaráđgjafi í Springfield sem veitir forstöđu vikulegum samkomum mćđra međ börn á brjósti á Inova Fairfax sjúkrahúsinu segir: “Foreldrar og tengdaforeldrar spyrja mćđur oft í gagnrýnitón: Ertu enn međ barniđ á brjósti? " 
     
    Ţrátt fyrir ţennan ţrýsting sýndi könnun ţurrmjólkurframleiđendanna Ross Products Division of Abbott Laboratories hjá 2000 mćđrum ađ 17,6% barna voru enn á brjósti viđ eins árs aldur sem er stórt stökk frá 7,5% 1980 og 6,2 % 1990.

    Alţjóđa heilbrigđisstofnunin WHO mćlir međ ţví ađ mćđur brjóstfćđi börn sín í a.m.k. 2 ár. Og Samtök bandarískra barnalćkna AAP í Illinois mćlir í nýjustu skriflegu yfirlýsingu sinni 1997 međ ţví ađ börn séu höfđ á brjósti í ađ minnsta kosti ár og eins lengi fram yfir ţađ og móđir og barn kjósa.
    “Rannsóknir sýna ađ brjóstagjöf fram yfir ársaldur hefur heilsufarslega kosti fyrir bćđi móđur og barn,”segir Lawrence Gartner, formađur nefndar AAP um brjóstagjöf. Fyrir barniđ eru kostirnir nćringarfrćđilegir, immunological og ţroska.... Fyrir móđurina er lćkkandi tíđni á brjóstakrabbameini. Brjóstagjöf hefur líka róandi áhrif á ćsta krakka.

    Niđurstöđur margra rannsókna benda til ţess ađ ef börn fengju ađ venja sig sjálf af brjósti, myndu ţau gera ţađ á aldrinum frá 2,5 – 7 ára, segir Katherine Dettwyler, ţekktur mannfrćđingur og rithöfundur sem hefur stundađ rannsóknir á menningu og brjóstagjöf síđan 1981. Og tölur UNICEF frá 2001 sýna ađ í mörgum löndum er hátt hlutfall barna enn á brjósti viđ 20-23 mánađa aldur, sérstaklega í Benin, 64,3 % Indland, 68,9 % Íran, 41 % Eţjópía, 76,6 % og Nepal, 87,7 %.

    Ástćđur ţess ađ Bandaríkin hafa ekki haldiđ í viđ ađrar ţjóđir eru fleiri en áhugalausir eiginmenn og mótfallnir ađstandendur. Svefnţörf er ein ástćđa í viđbót.  June Fusner, barnalćknir í Kensington segir ađ sum brjóstabörn vakni oftar upp en önnur á nóttunnni og foreldrarnir séu ţví ţreyttir og stressađir. Ađ auki missi mörg börn áhugann á brjóstagjöf í kringum eins árs aldur ţegar ţau fari ađ borđa venjulegan fjölskyldumat.

    Enn ein ástćđa er kynlíf. “Hátt hlutfall prólaktíns og lágt hlutfall estrógens sem algengt er hjá konum međ börn á brjósti dregur úr kynlöngun,” segir Sheryl A. Ross, kvensjúkdómalćknir í Santa Monica, Calif.

    Konur sem ćtla ađ fara í vinnu aftur ađ fćđingarorlofi loknu hćtta oft brjóstagjöf vegna ţess ađ ţćr halda ađ hún gangi ekki upp. En raunar getur hún veriđ til bóta fyrir stór börn. Ţau fara yfirleitt ekki á brjóst á daginn svo mćđurnar ţurfa ekki ađ mjólka sig á vinnutíma. Leikskólabörn geta yfirleitt sleppt úr nótt eđa jafnvel nokkrum sólarhringum, ţannig ađ móđirin gćti ferđast í burtu vegna vinnunnar. Og brjóstagjöf getur fćrt bćđi móđur og barni öryggi og friđ, segir Gale Pryor, höfundur "Nursing Mother, Working Mother" (Harvard Common Press).

    Ímyndin er líka vandamál fyrir vinnandi konur sem rćđa langtímabrjóstagjöf  í vinnunni, segir Pryor, sjálfstćtt starfandi blađamađur ritstjóri í Massachusetts. "Langtímabrjóstagjöf er oft jafnađ viđ einhverskonar náttúrulegt móđurhlutverk sem ekki er samrćmanlegt viđ frama í starfi. Komiđ međ stálpađ brjóstabarn á viđskiptafund og ég get lofađ ykkur nokkrum hleykslunaraugnaráđum,” segir hún.
    Sérfrćđingar segja ađ ađalástćđan fyrir ţví ađ börn eru vanin af brjósti um eins árs aldur sé ađ langtíma brjóstagjöf sé ekki viđurkennd í amerískri menningu. Mörgum ţyki börn verđa of stór til ađ vera á brjósti ţegar ţau nái ákveđnum áföngum í lífinu, s.s. lćri ađ ganga, eđa tala eđa ţegar ţau eru nógu stór til ađ nota skó, segir Mary Lofton, fulltrúi La Leche League International, stuđningssamtaka viđ brjóstagjöf sem hafa höfuđstöđvar í Illinois. Sumum finnst fráhrindandi ţegar barn getur spurt: Má ég fá brjóst núna, mamma?”

    Í Bandaríkjunum er litiđ á brjóst sem kynlífstćki/hluti og ţau eiga ţví ađ vera hulin á almannafćri. Dia Michaels, ţriggja barna móđir í District og forseti Platypus Media, sem gefur út bćkur fyrir fjölskyldur, kennara og fagfólk sem leiđbeinir uppalendum, segir: “Brjóst eru notuđ til ađ selja allt frá bjór til bíla og bandaríkjamenn hryllir ţví viđ ađ sjá brjóstagjöf á almannafćri.” Hún segir ađ sumir sýni hrylling ţegar ţeir sjái hana gefa fjögurra ára gömlu barni sínu brjóst og hún hefur heyrt athugasemdir allt frá “Ţetta er bannađ hérna” til “Ţetta er ógeđslegt”  og “Er hún ekki of gömul fyrir ţetta?”ţegar hún gefur dóttur sinni á veitingahúsum, skemmtigörđum, í flugvélum og í lestinni.

    Jafnvel á barnavćnum stöđum eru konur oft gagnrýndar fyrir brjóstagjöf. Jolene Ivey, móđir fimm drengja í Cheverly, minnist ţess ađ hafa gefiđ einum sona sinna, ársgömlum, á sundlaugarbarni í hverfinu 1996. Sundlaugarvörđur tilkynnti henni ađ hún yrđi ađ fćra sig frá lauginni. “Vörđurinn sagđi ađ ţetta skapađi hćttu, ţví ţađ vćri bannađ ađ vera međ mat viđ laugina, eins og ég hefđi rétt honum kókflösku,” sagđi hún.

    Ivey, einn stofnenda Mocha Moms, stuđningshóps fyrir litađar heimavinnandi mćđur, hafđi samband viđ heilbrigđisyfirvöld sem leiddi til stefnubreytingar. Brjóstagjöf er leyfđ ađ fullu. Ivey minnist ţess líka ađ hafa veriđ viđ sjálfbođastörf í barnaskóla og ţegar hún gaf syni sínum á öđru ári brjóst hafa skólastjóri komiđ ađ máli viđ hana og beđiđ hana ađ fara afsíđis vegna kvartana. “Ţví stćrra sem barniđ er ţví erfiđara ađ gefa á almannafćri,” segir hún.

    Sumir rannsakendur telja ađ viđhorf til langtímabrjóstagjafar sé smám saman ađ breytast.  “Ég sá um spjallţćtti á níunda áratugnum og ţá var ţetta málefni verulega sprengihćtt en á síđustu tíu árum hefur viđhorfiđ veriđ ađ breytast til batnađar,” segir Peggy O´Mara útgefandi og ritstjóri Mothering magazine, sem gefiđ er út i Santa Fe, N.M.

    Kvensjúkdómafrćđingurinn Ross segir ađ ţađ sé í tísku ađ vera međ börn á brjósti núna og ađ fyrir konur megi segja ađ ţćr geti “montađ sig af ađ geta sagt, ég var međ hann á brjósti í X langan tíma.”
    Stjórnmálamenn hvetja til langtíma brjóstagjafar. The Department of Health and Human Services, deild sem komiđ var á fót eftir ađ Bandaríska brjóstagjafanefndin var stofnuđ 1998, setur markiđ á ađ 25% kvenna verđi međ börn sín á brjósti lengur en 12 mánuđi áriđ 2010. Og repúblikaninn Carolyn B. Maloney (D-N.Y.) ćtlar ađ flytja frumvarp í vor sem tryggir konum ađ ţćr missi ekki störf sín, né verđi fyrir áreiti né óţćgindum vegna ţess ađ ţćr gefa brjóst eđa mjólka sig í vinnunni og ađ vinnuveitendur geti fengiđ skattaafslátt, hvetji ţeir starfsmenn sína til brjóstagjafar. “Á mörgum vinnustöđum fćr fólk pásu til ađ reykja eina sígarettu eđa fá sér súkkulađi, en ekki til ađ mjólka sig handa barninu sínu,” segir Maloney.

    Og ţjóđfélagiđ mun verđa betra ţegar konur hćtta ađ ţurfa ađ fara í felur međ ađ gefa börnum sínum brjóst og fer ađ líđa vel međ ţađ, ţótt börnin séu orđin stálpuđ. "Á međan konur gefa brjóst í bađherbergjum, á bak viđ lokađar dyr og úr augsýn, ţá verđur brjóstagjöf ekki talin eđlileg, " segir Michaels, sem hefur brjóstfćtt börn sín ţrjú í samtals 12 ár.

    Nútímamćđur taka eigin ákvarđanir um lengd brjóstagjafar. En ef ţćr hafa góđan stuđning vina, ćttingja og annarra mćđra auk menningarlegs og lagalegs stuđnings viđ brjóstagjöf á almannafćri og í eigin híbýlum, eru ţćr líklegri til ađ halda áfram eftir ađ barniđ stálpast. Ţćr sem ţađ gera munu í framtíđinni líta til baka til brjóstagjafaráranna međ ánćgju. Segir Vakiner móđirin frá Fairfax sem var međ dóttur sína á brjósti til fimm ára aldurs: “ Ég er mjög ánćgđ međ ađ hafa haft dóttur mína svo lengi á brjósti vegna ţess ađ ţađ leiddi til uppeldis ţar sem ég hafđi ţarfir barna minna ađ leiđarljósi í stađ ţess ađ neyđa upp á ţau einhvers konar fyrirfram ákveđiđ ţroskadagatal.

    Eftir Rebeccu R. Kahlenberg, The Washington Post. Ţýtt af Guđrúnu Jónasdóttur



    Til baka

    Tilbođsvörur

     

    Póstlisti Móđurást

    Netfang *
    Nafn *
    Eftirnafn *
    SkráAfskrá
     

    Pistlar

    11.11.2007
    10 góđ ráđ til ađ bćta nćtursvefn brjóstabarnsins
    26.10.2007
    Hey mamma get ég fengiđ brjóst núna?
    25.10.2007
    Formjólkurkveisa: Lactose overload
    25.10.2007
    Brjóstagjöf fyrirbura
    25.10.2007
    Mjólkuraukning međ hjálp jurtaúrrćđa

    Allir pistlar

     
         

    Móđurást - Hamraborg 9 - Kópavogur 200 - Ísland - http://www.modurast.is - Sími 564 1451 Opiđ virka daga frá 10-18 og 12-16 á laugardögum

    Ţessi vefur keyrir á Aicon vefstjóranum