Næturvökur eru oft mjög erfiðar nýbökuðum foreldrum. Hér koma nokkur einföld ráð sem geta hjálpað til við að bæta nætursvefninn:1. Hafið reglu á hlutunum. Ef barnið sefur fram eftir degi til að bæta sér upp tapaðan nætursvefn, prófaðu að vekja það fyrr og fyrr á morgnana til að hvetja til nætursvefns á sama tíma og aðrir fjölskyldumeðlimir sofa.
2. Kjósið bjartan stað fyrir dagblundana. Þetta styttir dagsvefntímana, sem svo aftur gæti bætt nætursvefntímann.
3. Fjölgið daggjöfum. Fjölgun brjóstagjafatíma yfir daginn fær barnið til að fullnægja frekar næringarþörf sinni á tíma sem hentar þér betur.
4. Gefðu barninu á hljóðlátum rökkvuðum stað ef barnið lætur auðveldlega truflast við daggjafirnar.
5. Ef þú ert með barnið á brjósti, leyfðu þá barninu að ljúka sér af á fyrra brjóstinu sem þú býður. Þannig fær barnið meiri eftirmjólk sem gæti hjálpað til við að fækka næturgjöfum.
6. Berðu barnið – í ruggupoka, wrap eða öðrum burðarpoka Þetta hjálpar barninu að slaka á, sérstaklega framan af kvöldi, sem hjálpar barninu svo aftur að sofan.
7. Reyndu að halda kvöldstundunum í ró til að koma í veg fyrir oförvun. Ef barnið slakar vel á í baði, getur þú baðað það fyrir nóttina, ef baðið er of örvandi, baðaðu barnið á öðrum tíma.
8. Gefðu barninu án þess að kveikja ljósið yfir nóttina ef það vaknar svangt. Kenndu barninu að á nóttunni sefur maður, þótt maður fái brjóstið.
9. Forðastu að skipta á bleyju á nóttunni ef það er mögulegt.
10. Taktu barnið uppí til þín ef það getur hjálpað þér að ná svolítið meiri hvíld.
Og ekki gleyma að hugsa um sjálfa þig!
- Hvíldu þig á meðan barnið hvílist. Þetta er sérstaklega mikilvægt er barnið er mjög þurftafrekt.
- Farðu í gönguferð. Sól og ferskt loft er gott fyrir ykkur bæði. Útivist saman með barnið í burðarpoka, vagni eða kerru getur dregið verulega úr streitu.
Unnið upp úr grein eftir Deb Donovan brjóstagjafaráðgjafa af Guðrúnu Jónasdóttur brjóstagjafaráðgjafa