|
Leitarvél |

|
|
| |
|
| |
Karfan þín |

|
|
|
|
Algengar spurningar um brjóstagjöf
Þessar spurningar og svör eru tekin saman af ýmsum heimasíðum á netinu m.a. síðu LLLI. Ekki er víst að svörin eigi við hjá þér, en reynt er að halda sig við almennar upplýsingar um brjóstagjöf. Tekið skal fram eigir þú við alvarleg vandamál að stríða í sambandi við brjóstagjöf bendum við þér á að hafa samband við brjóstagjafaráðgjafa eða annað fagfólk..
Er brjóstagjöf sársaukafull? Nei! Ef hún er sársaukafull þá er ásetning barnsins á brjóstið ekki rétt. Taktu barnið af brjósti og leggðu það á aftur.
Hvernig veit ég hvort barnið er að fá næga mjólk? Þegar mjólkin kemur í brjóstin þá á það við að “það sem fer inn um annan endann, kemur út um hinn” 4-6 blautar einnota bleyjur (6-8 taubleyjur) og 3-4 bleyjur með hægðum í á sólarhring, segir að barnið sé að fá nóga mjólk hjá þér.
Get ég gefið brjóst án þess að sýna á mér brjóstin? Að sjálfsögðu! Bæði fást föt sérhönnuð fyrir brjóstagjöf og einnig getur þú valið tvískiptan klæðnað og lyft upp skyrtunni. Þú getur líka haft klút eða létt teppi yfir öxlina.
Hvað gerir brjóstagjöfin fyrir mig? Vel gefið, hraustara barn sem fær síður ofnæmi. Minni hætta á brjósta-, leg- og leghálskrabbameinum. Fljótari að ganga saman eftir fæðinguna. Yndisleg tengsl við litla barnið þitt. Auðvelt, engar blöndur sem þarf að blanda, kaupa eða hreinsa.
Get ég gefið brjóst ef brjóst mín eru lítil? Já! Mjólkurframleiðsla hefur ekkert með brjóstastærð að gera. Breytingar í brjóstunum í byrjun meðgöngu gera þeim kleift að framleiða mjólk.
Þarf ég ekki að breyta matarvenjum mínum? Alls ekki. Borðaðu bara fjölbreyttan og hollan mat og þú getur haldið áfram að taka meðgöngubætiefnin á meðan þú ert með barnið á brjósti. Aðeins í því tilfelli að faðir barnsins sé með alvarleg fæðuofnæmi, ættir þú að forðast þær fæðutegundir fyrir þig og barnið á meðan það er á brjósti.
Er brjóstagjöf ekki bindandi? Raunar ekki. Fyrstu mánuðina er brjóstabarn sérstaklega færanlegt! Bara nokkrar bleyjur og föt til skiptanna og þú getur farið hvert sem er með barnið. Þegar barnið stækkar getur þú kosið að mjólka þig til að skilja eftir á meðan þú ert að heiman.
Hversu lengi er ég að gefa brjóst? Fyrst eftir fæðinguna taka gjafir yfirleitt 30-45 mínútur. Þegar barnið stækkar og verður kröftugra getur gjöfin styst niður í 10-15 mínútur.
Hvað er svo sérstakt við móðurmjólkina? Líkami þinn sérhannar mjólkina fyrir þitt barn. Kúamjólk var hönnuð fyrir kálfa! Í hvert sinn sem barnið þitt drekkur úr brjóstinu fær það vörn gegn öllum þeim sjúkdómum sem þú og það hefur komist í snertingu við. Og að auki fær það öll nauðsynleg efni til þroskunar heila og líkama síns.
Hvers vegna segir fólk að brjóstagjöf sé mikilvæg? Við fæðingu er barnið með mótefni gegn öllum þeim sjúkdómum sem móðirin hefur myndað mótefni fyrir en ekkert eigið mótefnakerfi. Um sex mánaða aldur er mótefnakerfið starfandi en óþroskað og það heldur barninu hraustu og ofnæmislausu. Brjóstamjólkin færir barninu öll þau mótefni sem það þarf á að halda þangað til það getur framleitt sín eigin.
Hvers vegna ætti ég að vera að leggja á mig brjóstagjöf þegar ég veit að ég fer fljótlega í vinnu (eða skóla)? Þegar þú byrjar aftur í skóla eða vinnu, getur þú annað hvort mjólkað þig til að gefa barninu daginn eftir eða gefið þurrmjólk. Þótt þú gætir þurft að mjólka þig í nokkra daga þangað til brjóstin verða ekki eins full og líkami þinn aðlagar sig að þessari breytingu eins og hann gerir þegar barnið fer að sofa lengur á nóttunni.
Mun ég geta haft nóg fyrir barnið mitt? Brjóstið er skapað til að mynda aftur jafn mikla mjólk og fjarlægð er úr því, reglan um framboð og eftirspurn. Áður en pelar urðu svo sjálfsagðir fannst okkur jafn sjálfsagt að allar mæður gætu brjóstfætt börn sín og höfðum engar áhyggjur af því. Ef við leyfum barninu að sjúga brjóstið þangað til það hættir á 2-3 tíma fresti til að byrja með tryggir að þú framleiðir næga mjólk.
En faðir barnsins? Mun honum ekki finnast hann vera hafður út undan? Það er margt sem pabbar geta gert með barninu annað en gefa því að borða. Böðun er t.d. mjög náin athöfn og skemmtileg. Hann getur setið hjá ykkur á meðan barnið er á brjósti og nuddað á þér herðarnar, það eykur mjólkurstreymið og hefur róandi áhrif á barnið. Hann getur hlustað eftir kyngingunni verða örari. Og pabbi getur ruggað, faðmað og leikið við barnið og þá er hann aldrei út undan.
En ef ég er ráðþrota og vantar hjálp? Hafðu samband við brjóstagjafaráðgjafa. Ef hún getur ekki liðsinnt þér, finnur hún leið með þér.
Bítur barnið mig ekki? Ef barnið er að sjúga rétt, bítur það fyrst í tunguna á sér! Tennur koma yfirleitt ekki fyrr en á fimmta til sjötta mánuði og þá verður þú farin að þekkja það nógu vel til að sjá fyrir hvað það er að gera. |
|
|