|
Álfabikarinn – The Keeper og Moon Cup
… vara sem virðir heilsu kvenna og líkama þeirra jafnframt því sem notkun hans verndar náttúruna
Álfabikarinn – The Keeper og Moon Cup
Náttúrulegur valkostur gerður úr gúmmíi sem er náttúrulegt. Gúmmíinu er tappað af trjánum sem notuð eru og þau notuð ár eftir ár. Engin tré eru felld.
Fullkomin hönnun... slétt yfirborð, engir ónauðsynlegir hnökrar sem gætu ert og pirrað viðkvæman vef
.. eins og nafnið segir þá er Keeper geymsla en ekki eitthvað sem maður hendir eftir notkun!
Álfabikarinn er lítill bikar sem borinn er innvortis, margnota tíðabikar sem gerður er úr náttúrulegu gúmmíi. Hann er skynsamlegur valkostur á móti töppum eða dömubindum. Álfabikarinn getur tekið allt að 30 ml af tíðablóði (meðalmagn hjá venjulegri konu á mánuði eru 50-80 ml.) Bikarinn má tæma á allt að 12 klst fresti og bera yfir nótt. Frábær lausn fyrir allar konur sem þola latexgúmmí, fyrir hinar er Moon Cup, Álfabikarinn úr silikoni.
ÁLFABIKARINN virðir líkama þinn því hann dregur ekki í sig raka né truflar rakajafnvægi leggangnanna, hann geymir tíðablóðið,en dregur það ekki í sig. Álfabikarinn særir ekki við innsetningu eins og innsetningaráhöld með töppum gera stundum. Þar sem Álfabikarinn er gerður úr náttúrulegu gúmmíi forðast þú að komast í snertingu við hættuleg efni (s.s. díoxín) trefjar og viðbætt efni sem hugsanlega finnast í ýmsum tegundum dömubinda og tappa. Ef þú ert með latex ofnæmi er Álfabikarinn ekki fyrir þig. Ef þú ert ekki viss, ráðleggjum við þér að ræða við kvensjúkdómalækni. Smelltu hér til að fá meiri upplýsingar.
Álfabikarinn er umhverfisvænn og stuðlar að jafnvægi í náttúru jarðarinnar engum pappír er hent mánuð eftir mánuð. Engir plastinnsetningarstautar. Allt fyrrnefnt mengar og skapar hættu fyrir dýralíf á jörðinni. Tappað er af gúmmítrjánum en þau ekki felld. Smelltu hér til að fá frekari upplýsingar.
Álfabikarinn sparar þér peninga. Ef vel er með hann farið endist hann í allt að 10 ár. Álfabikarinn er svo þægilegur. Engin ástæða til að vera með fullt veski af alls kyns töppum og dóti þegar farið er að heiman. Smelltu hér til að fá frekari upplýsingar. Smelltu hér fyrir samanburð á verði.
Álfabikarinn er auðveldur í notkun og einfaldur í viðhaldi, þegar vel er um hann hirt. Þegar þú setur Álfabikarinn inn, byrjaðu á að brjóta hann saman eftir endilöngu milli fingranna, settu hann inn, snúðu og togaðu svo létt í hann til að fá lofttæmi. Til að fjarlægja hann settu fingur inn með honum og taktu um botninn, ýttu létt á bikarinn til að losa lofttæmið, togaðu í bikarinn, fjarlægðu hann og tæmdu. Skolaðu eða þerraðu af honum og settu hann upp aftur. Smelltu hér fyrir leiðbeiningar.
Álfabikarinn, The Keeper og The Moon Cup eru framleiddir í Bandaríkjunum af The KEEPER Inc. Viðurkenndur af FDA og Health Canada
Álfabikarinn er úr náttúrugúmmíi og inniheldur latex. Konur sem hafa ofnæmi fyrir latexi ættu að velja Moon Cup, Álfabikarinn úr silikoni.
Álfabikarinn, Keeper og Moon Cup fást í Móðurást, Hamraborg 7, Kópavogi. Einnig er hægt að panta í síma 5641451. |