Forsíða Vörur & Verslun Fréttir / Tilkynningar Fyrirtækið Brjóstagjöf Vörumerkin Álfabikarinn Mjaltavélaleigan Mjólkun Hafðu samband
     

Leitarvél

 

Nýjar vörur

Tigex naghringur +3M
Tigex naghringur silikon
Tigex kælihringur
Tigex diskur með sogskál
Tigex skæri

 

Karfan þín

Leiðbeiningar við mjólkun

Brjóstadælur fást í mörgum gerðum. Mikilvægast er að dælan sé örugg, virk og þægileg. Lestu vel meðfylgjandi handbók áður en þú notar dæluna.

Heilbrigt ungbarn er mikið duglegra að tæma brjóstið en nokkur dæla. Mundu að brjóstagjöf er lærð og sýndu þolinmæði. Það getur þurft að gera þó nokkrar tilraunir áður en brjóstagjöfin fer að ganga hnökralaust.

Hér eru nokkrar ábendingar um mjólkun:

  • Byrjaðu alltaf á að þvo þér um hendurnar fyrir mjólkun.
  • Andaðu nokkrum sinnum djúpt til að slaka vel á og flýta fyrir tæmingarviðbragðinu
  • Leggðu heitan bakstur við brjóstið í tíu mínútur fyrir mjólkun
  • Hafðu eitthvað hjá þér að drekka til að örva tæmingarviðbragðið, vatn, safa eða heitt te.

Ákjósanlegir dælingartímar fara eftir því hvenær barnið drekkur. Ef þú þarft að safna í aukagjöf, reyndu þá að pumpa á morgnana eftir gjöf, því þá er mjólkin mest að magni.

Til að viðhalda nægri mjólkurframleiðslu er nauðsynlegt að leggja oft á brjóst eða fara í brjóstadælu. Mjólkurframleiðsla getur minnkað með tímanum sérstaklega ef barnið þitt er veikt. Ef það hins vegar fer aftur á brjóst mun framleiðslan aukast að nýju.

Að lokum, mundu eftir að hugsa vel um sjálfa þig. Borðaðu fjölbreytta næringarríka fæðu, drekktu vel og hvíldu þig nóg.
 
Þýtt og staðfært af heimsíðunni:

Ann´s Bra and Lingerie & Lenore´s Mastectomy Center

Breast pumping tips

Tilboðsvörur

 

Póstlisti Móðurást

Netfang *
Nafn *
Eftirnafn *
SkráAfskrá
 

Pistlar

11.11.2007
10 góð ráð til að bæta nætursvefn brjóstabarnsins
26.10.2007
Hey mamma get ég fengið brjóst núna?
25.10.2007
Formjólkurkveisa: Lactose overload
25.10.2007
Brjóstagjöf fyrirbura
25.10.2007
Mjólkuraukning með hjálp jurtaúrræða

Allir pistlar

 
     

Móðurást - Hamraborg 9 - Kópavogur 200 - Ísland - http://www.modurast.is - Sími 564 1451 Opið virka daga frá 10-18 og 12-16 á laugardögum

Þessi vefur keyrir á Aicon vefstjóranum