Oft er spurt um tannhirðu ungbarna, ekki síst brjóstabarna hér í Móðurást, enda er hér úrval af vönduðum tannhirðuvörum.
Hér á eftir koma leiðbeiningar frá Embætti landlæknis um þetta efni:
Ráðleggingar Embættis landlæknis um brjóstagjöf og tannvernd
Að gefnu tilefni vill Embætti landlæknis vekja athygli á að ráðleggingar embættisins um brjóstagjöf hafa ekki breyst á síðustu árum. Móðurmjólkin er besta næring sem völ er á fyrir ungbarn og brjóstamjólk eingöngu fyrstu sex mánuðina inniheldur öll næringarefni sem barn þarf á að halda sér til vaxtar og þroska. Mælt er með að brjóstamjólk sé hluti fæðunnar allt fyrsta árið og jafnvel lengur. Börnum á þurrmjólk má smám saman gefa stoðmjólk í staðinn frá sex mánaða aldri.
Í kjölfar tanntöku er æskilegt að draga úr næturgjöfum, sérstaklega hjá börnum sem nærast á þurrmjólk úr pela, og bjóða þess í stað vatn á nóttunni. Næturgjafir eru brjóstabarni mikilvægar, sérstaklega fyrstu sex mánuðina og jafnvel lengur. Hafa ber í huga að ef barn sofnar út frá brjóstagjöf á kvöldin er mikilvægt að bursta tennurnar vel áður. Þar sem skán getur myndast á tönnum við næturgjafir er mælt með tannburstun strax að morgni.
Börn sem eru komin með tennur og farin að borða kolvetni á daginn fá skán á tannyfirborð sem getur valdið tannskemmdum. Frá því fyrsta tönn er sýnileg þarf að bursta tennur tvisvar á dag með 0,1% flúortannkremi. Magn tannkrems samsvarar ¼ af nögl litlafingurs barns yngra en 3 ára.
Ekki er ráðlagt að gefa barni ávaxtasafa eða sætt te í pela, hvorki
á nóttu né degi, því sykur skemmir tennurnar og ávaxtasýra eyðir tannglerungi. Gott er að venja 6 mánaða börn við stútkönnu og 12-18 mánaða börn af pela.
Brjóstamjólk hefur ekki glerungseyðandi áhrif og inniheldur efnasambönd sem geta dregið úr virkni baktería. Hafa ber í huga að munnvatnsframleiðsla er í lágmarki að nóttu til sem eykur hættu á tannskemmdum ef aðgát er ekki höfð í tannhirðu.
Geir Gunnlaugsson, landlæknir Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir
Hólmfríður Þorgeirsdóttir, næringarfræðingur
Birtist í Fréttablaðinu í dag 2.3.13