Angelcare AC115 hljóð- og hreyfiskynjari gerir foreldrum kleift að slaka á meðan barnið hvílist. Stafrænt hljóð- og hreyfisskynjari á tækinu gerir foreldrum kleift að bregðast betur við þörfum barnsins. Angelcare hannar mest seldu og traustverðustu barnavaktirnar með hreyfiskynjara í heiminum. Hreyfskynjaraplatan sem Angelcare er með einkaleyfi fyrir er hönnuð þannig að hún fer undir dýnu barnsins þar sem hún skynjar hreyfingar barnsins á meðan það er í rúminu/vöggunni. Öll tæki Angelcare sem eru með hreyfiskynjara gera foreldrum viðvart ef engin hreyfing er skynjuð eftir 20 sekúndur. AC115 er með hreyfiskynjaraplötu sem hönnuð var með nýjum, smáum hljóðnema/hitamælisskynjara ásamt nýrri hönnun á hljóðnema foreldratækisins. Tækið býður upp á nýjan stafrænan hitamæli sem sýnir í lit hvernig hitastigið er í rými barnsins. Ef liturinn er blár þá er of kalt, ef liturinn er hvitur er hitastigið í lagi og ef liturinn er rauður þá er of heitt. Foreldratækið býður upp á að tala við barnið í gegnum tækið, þ.e eins og talstöð. Vertu örugg/ur með barnið þitt og upplifðu algöra hugarró. MIKILVÆGT: Hreyfiskynjarinn virkar með flestum dýnum. Hins vegar er ekki hægt að nota hreyfiskynjarann með dýnum sem varðaveita lögun barnsins eins og t.d Tempur. MIKILVÆGT: Angelcare hreyfiskynjarinn kemur ekki í staðinn fyrir eftirlit foreldra/forráðamanns. Eftirlit með fyrirburum eða börnum sem talin eru í meiri hættu, ættu að vera undir eftirliti lækna eða heilbrigðisstarfsfólks. Angelcare á EKKI að nota sem lækningatæki né til að koma í veg fyrir ungbarnadauða (SIDS). Sem foreldri þá er velferð og öryggi barnsins í efsta sæti. Angelcare AC 110 tækið býður upp á fullkomlega tær hljómgæði svo þú getir heyrt minnsta píp, hvern grátur, hjal og hlátur barnins þíns þegar þú ert ekki inn í herbergi barnsins.
Angel Care barnapíutæki með plötu
29.900 kr.
Á lager
Vöru bætt við
Skoða óskalista
Þessi vara er nú þegar á óskalistanum
Skoða óskalista
Tengdar vörur
Barnapíutæki
850 kr.
Barnapíutæki
18.990 kr.
Bleyjur, koppar og bleyjufötur
4.490 kr.