Astroglide Ultra Sensitive gel Wb 85gr
Hvað segja notendur sleipiefna:
70% kvenna segjast fá meiri ánægu út úr kynlífi þegar þær nota sleipiefni. 65% notenda segja kynlíf verða þægilegra með sleipiefni. Sjaldgjæft er að einstaklingar upplifi aukaverkanir samhliða notkun sleipiefna. Verulega auknar líkur á fullnægingu kvenna þar sem þær finna að þær eru blautar og slaka því á í samförum.
Virkar einnig gegn þurrki í leggöngum
Margar konur upplifa þurrk í leggöngum einhvern tíma á lífsleiðinni. Þrátt fyrir að þetta vandamál sé nokkuð algengt er það óþægileg reynsla fyrir viðkomandi.
Einkenni þurrks í leggöngum eru:
Kláði
Brunatilfinning
Þrýstings tilfinning
Verkur og /eða litlar blæðingar við kynmök
Sum einkenni eins og kláði, brunatilfinning, erting eða sársauki eru stöðug eða koma og fara. Mörg þessara einkenna getur kvensjúkdómalæknir meðhöndlað með hormónameðferð.
Örsakir þurrks í leggöngum
Örsakirnar geta verið margar allt frá því að vera lækkun á gildi estrogen eða vegna utan að komandi þátta s.s. lyfja– eða geislameðferðar, túrtappa, smokka eða hettu notkunar. Einnig geta aukaverkanir vegna nefúða- og ofnæmislyfja komið fram sem þurrkur í leggöngum.
Hjá flestum konum er orsökin vegna lækkunar á styrk estrogen, en hún verður á meðgöngu og í kjölfar barnsfæðingar og á breytingaskeiðinu. Einnig við brjóstagjöf, og allar breytingar á tíðahringnum, við notkun getnaðarvarna, frjósemislyfja eða við legnám eða skyldar aðgerðir. Einnig getur álag og mikil líkamsrækt valdið þurrki í leggöngum.
Meðferð við þurrki í leggöngum
Það má oft meðhöndla þurrk í leggöngum með því að auka vökvainntekt og gera samhliða grindarbotnsæfingar í þeim tilgangi að auka blóðflæði til grindarbotnssvæðisins og örva þar með framleiðslu á eðlilegri slímmyndum. Einnig getur aukinn fjöldi samfara örvað eðlilega slímframleiðslu í leggöngum.
Þegar valin eru sleipiefni er mikilvægt að nota alltaf sleipiefni sem eru vatnsblönduð eða vatnsuppleysanleg, aðeins súr (pH-jafnvægi) í samræmi við aðra líkamsvessa.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.