Libero Touch bleyjur stærð 3
Libero Touch bleyjurnar eru framleiddar af sænsku fyrirtæki sem heitir SCA sem var stofnað árið 1929 og leggur mjög mikla áherslu á skógrækt og umhverfismál og hefur hlotið fjöldann allan af verðlaunum á því sviði.
Bleyjurnar eru svansmerktar en Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna og eru strangar kröfur sem vörur þurfa að uppfylla til að mega vera svansmerktar og eru þær vörur betri bæði fyrir umhverfið og heilsuna.
Libero touch bleyjurnar voru í 2 ár í þróun hjá fyrirtækinu og eru að þeirra sögn stærsta bylting í bleyjuþróun síðustu 20 ár. Mörg hundruð börn og foreldrar tóku þátt í þróun og prófunum á bleyjunum í samvinnu við sérfræðinga. Það sem þessar bleyjur hafa fram yfir aðrar á markaðnum eru mikil gæði, mýkt og snið sem ekki hefur sést á markaðnum áður.
Bleyjurnar eru úr nýlega þróuðu sérlega mjúku og teygjanlegu efni sem gerir það að verkum að þær leggjast betur að líkamanum og aðlagast honum. Þær auka hreyfigetu um mjaðmir, mitti og fótleggi og eru með tvöfaldri lekavörn í kringum læri sem kemur í veg fyrir leka og heldur barninu þurru og ánægðu. Kjarninn í bleyjunum er úr rakadrægu efni sem getur haldið allt að 60faldri þyngd sinni.
Libero Touch koma í 7 stærðum, þær minnstu fyrir fyrirbura og upp í 20kg svo það þarf ekkert að skipta um tegund þegar barnið stækkar.