Silver Cross Reflex kerra Orient
Reflex kerran er hönnuð með það að leiðarljósi að hámarka þægindi bæði foreldra og barna og er hún útbúin öllum þeim kostum sem kerra þarfnast til að uppfylla það. Með kerrunni fylgir sérstakt ungbarnainnlegg svo hægt sé að nota hana frá fæðingu.
Hægt er að leggja bakið á Reflex alveg niður og setja fótskemilinn upp. Sérstök hönnun á bakinu er útbúin einstakri tækni sem Silver Cross er með einkaleyfi á. Virkar þannig að bakið á barninu snertir aldrei á grindinni. Fóðrið er mjúkt og hentar einstaklega vel sem svefnkerra. Það eru 3 hæðarstillingar á handfanginu á Reflex og öryggissláin á kerrunni leggst saman með henni þegar hún er lögð saman.
Helstu kostir:
• Hentar börnum frá fæðingu og upp í 25 kg
• Sæti úr efni sem andar til að auka þægindi barns
• Stillanlegt handfang
• UPF50+ sólarvörn
• Létt og meðfærileg kerra sem auðvelt er að ferðast með
Hámarskþyngd í kerru: 25 kg
Hvað fylgir:
Ungbarnainnlegg
Regnplast
Stærð opin
Lengd: 100 cm. Breidd: 61 cm. Hæð: 100-107 cm
Stærð lokuð
Lengd: 106 cm. Breidd: 31 cm. Hæð: 35 cm
Þyngd:
8,5 kg
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.